Lögreglan á Vesturlandi Hafa samband

Tilkynna brot

Smelltu hér til að tilkynna brot
eða sækja um leyfi.
Nánar

112 Neyðarnúmer

Þarft þú aðstoð lögreglu – hringdu þá í 112
112

Hafðu samband

Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0300 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.

Tilkynna brot

Hér er hægt að tilkynna brot rafrænt

Áfram

Leyfi

Hér er hægt að sækja um leyfi rafrænt

Áfram

Kærumóttaka

Óska eftir tíma í kærumóttöku

Ósk um tíma

Lögreglan á Vesturlandi Á Facebook

Comments Box SVG iconsUsed for the like, share, comment, and reaction icons
2 vikum síðan
Lögreglan Vesturlandi

Töluverð umferð hefur verið í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi það sem af er helgi. Mikill fjöldi ferðamanna er víða á tjaldsvæðum i umdæminu og flestir eru á unglingalandsmóti UMFÍ í Borgarnesi.

Umferðarslys varð í Hvalfjarðargöngum í gær, föstudag, þar sem lögreglumenn á Vesturlandi komu lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu til aðstoðar.

Nokkrir ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur og sá sem hraðast ók var á 131 km/klst. á Borgarfjarðarbraut.

Borið hefur á því að ekið hefur verið á sauðfé í umdæminu og viljum við benda ökumönnum á að tilkynna það tafarlaust til lögreglu.

Lögreglumenn hafa verið með eftirlit á vegum og á þeim stöðum sem tjaldsvæði eru og tala um að ferðamenn séu í meirihluta til fyrirmyndar.

Góða helgi!
... Sjá meiraSjá minna

Comment on Facebook

Því miður hefur borið töluvert af því undanfarin ár að sauðfé sé utan girðinga. Þetta var nokkuð áberandi í Eyrarsveit á norðanverðu Snæfellsnesi vestan Grundarfjarðar síðastliðið sumar. Vonandi hafa girðingar verið bættar og eins varsla sauðfjársins. Það er öllum þeim sem málið varðar til mikils vansa ef út af bregður því oft verða óhöpp jafnvel við mjög mikla árverkni ökumanna. Eg varð einu sinni vitni að sem leiðsögumaður fremst í rútu að lamb vissi greinilega ekkert hvert það ætti að fara. Það vék af veginum og taldi bílsstjórinn að það myndi halda sig þeim megin vegar meðan rútan færi fram hjá því. Jók hann ferðina en jafnframt tók lambið kolranga ákvörðun, snéri við og hugðist vaða yfir veginn en varð fyrir rútunni. Þetta var mjög dapurlegt að verða vitni að og bílstjórinn einn af þeim varkárnari í umferðinni varð eðlilega mjög miður sín.

1 mánuði síðan
Lögreglan Vesturlandi

Í gær var mikið um að vera á Akranesi, enda laugardagur Írskra daga alla jafna stærsti dagur hátíðahaldanna. Dagurinn endaði á svonendu Lopapeysuballi á hafnarsvæðinu og að þessu sinni hafa gestir þar líklega verið um 5000.
Annríki var hjá lögreglu í nótt og fram eftir morgni og eru atvik og mál sem lögregla sinnti um 70
5 sinnum þurfti lögregla að bragðast við vegna átaka en engin alvarleg meiðsl hlutust af.
5 voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og 10 vegna gruns um ölvun við akstur og 7 fíkniefnamál komu upp
Tveir gistu fangageymslu.
Þegar leið á nóttina þurfti að aðstoða allnokkra sem vegna ölvunar, áttu í vandræðum með að komast í náttstað.
Þó nokkrum ungmennum var komið í hendur félagsmálayfivalda en ekki liggur fyrir á þessari stund hversu mörg þau voru.
Að sögn lögreglumanna á næturvakt gekk vaktin, þrátt fyrir allt, vel og ekkert "stórt" kom upp
... Sjá meiraSjá minna

1 mánuði síðan
Lögreglan Vesturlandi

Nú standa yfir Írskir dagar á Akranesi og venju samkvæmt talsvert af fólki sem heimsækir bæinn.
Alltaf eru einhverjir sem fara út af sporinu þegar margir eru að skemmta sér. Um 30 tilvik eru skráð hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt.
Þau helstu eru að fjórir ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur og einn akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra bakkaði á aðra bifreið.
Þrisvar sinnum kom til átaka manna í milli en sem betur fer meiðsli lítil eða engin.
Lögregla hafði afskipti af þremur ölvuðum ungmennum og var þeim komið í hendur forráðamanna.
Enginn gisti fangageymslur í nótt.
... Sjá meiraSjá minna

Comment on Facebook

Ég fékk svona gömlu daga fíling að keyra um bæinn í nótt, þegar allir hópuðust saman niður í bæ og mikil gleði🥰 Frábær ungmenni og flott að sjà foreldra á röltinu og ykkur líka. Eigið frábæra helgi og góða vakt í nótt🧡🤍💚

Fleiri færslur

LÖGREGLAN Á Instagram