Lögreglustöðin á Selfossi
Hörðuvellir 1
800 Selfoss
Opnunartími mánudaga til föstudaga: 09-16
Þjónustusími/sími: 444 2010
Netfang: sudurland@logreglan.is
Fax: 444 2019
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 2000 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Við bindum miklar vonir við samstarfsverkefni um aðgerðir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum og erum þess fullviss að það skili öruggara Suðurlandi. ... Sjá meiraSjá minna
Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni - Vísir
„Öruggara Suðurland“ er nýtt verkefni, sem lögreglan á Suðurlandi stendur fyrir í samstarfi við sveitarfélögin fjórtán á svæðinu og nokkrar stofnanir, en tilgangurinn er að móta a...Ein spurning. Því það gildir til 16. Ára. Hvað með 17. Ára unglinga? Þeir eru ekki lögráða. Barasta smá pæling. 🙏 meiga Þeir vera úti 24/7
Ja en skólinn er alveg frammí júní og byrjar aftur í ágúst....🙃🙃🙈😜
Refsing?
Síðdegis á laugardag barst lögreglunni tilkynning um mann sem æki ölvaður um sprungusvæði við Grímsvötn. Maðurinn var í hóp með öðrum ökumönnum á svæðinu og er grunaður um að hafa ekið ölvaður um sprungusvæðið . Samferðafólk mannsins reyndi án árangurs að fá manninn til að stöðva bifreiðina og óskaði því eftir aðstoð lögreglu við að stöðva akstur mannsins.
Þar sem um langan veg er að fara á vettvang var ákveðið að óska eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar og sérsveitar til að komast á vettvang og hélt þyrlan áleiðis á vettvang frá Reykjavík um klukkan 20:20 með tvo sérsveitarmenn.
Á meðan þyrlan var á leiðinni á vettvang fengust þær upplýsingar af vettvangi að maðurinn hafði skilað sér í skála og að samferðamaður hans hefði tekið við akstri bifreiðarinnar og að hópurinn hefði haldið áfram í Jökulheima.
Þyrlan lenti rétt norðan við Jökulheima um klukkan 21:30 þar sem hópurinn var að koma niður af jöklinum. Hinn ölvaði var handtekinn og fluttur með þyrlu á lögreglustöð.
Í dag hafa svo verið teknar skýrslur af hinum handtekna og vitnum að akstrinum en maðurinn var laus úr haldi lögreglu seinni partinn í dag.
Litið er á málið alvarlegum augum þar sem hættulegt sé að ferðast um jökla og nauðsynlegt að ökumenn séu alsgáðir við aksturinn.
... Sjá meiraSjá minna
Má ekkert í dag ?