Lögreglan á Suðurlandi Lögreglustöðin á Höfn

Lögreglustöðin á Höfn

Hafnarbraut 36
780  Höfn
Þjónustusími: 444 2050
Netfang: sudurland@logreglan.is

Tilkynna brot

Smelltu hér til að tilkynna brot
eða sækja um leyfi.
Nánar

112 Neyðarnúmer

Þarft þú aðstoð lögreglu – hringdu þá í 112
112

Hafðu samband

Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 2000 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.

Tilkynna brot

Hér er hægt að tilkynna brot rafrænt

Áfram

Leyfi

Hér er hægt að sækja um leyfi rafrænt

Áfram

Kærumóttaka

Óska eftir tíma í kærumóttöku

Ósk um tíma

Lögreglan á Suðurlandi Á Facebook

Comments Box SVG iconsUsed for the like, share, comment, and reaction icons
1 tíma síðan
Lögreglan á Suðurlandi

Síðdegis á laugardag barst lögreglunni tilkynning um mann sem æki ölvaður um sprungusvæði við Grímsvötn. Maðurinn var í hóp með öðrum ökumönnum á svæðinu og er grunaður um að hafa ekið ölvaður um sprungusvæðið . Samferðafólk mannsins reyndi án árangurs að fá manninn til að stöðva bifreiðina og óskaði því eftir aðstoð lögreglu við að stöðva akstur mannsins.

Þar sem um langan veg er að fara á vettvang var ákveðið að óska eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar og sérsveitar til að komast á vettvang og hélt þyrlan áleiðis á vettvang frá Reykjavík um klukkan 20:20 með tvo sérsveitarmenn.

Á meðan þyrlan var á leiðinni á vettvang fengust þær upplýsingar af vettvangi að maðurinn hafði skilað sér í skála og að samferðamaður hans hefði tekið við akstri bifreiðarinnar og að hópurinn hefði haldið áfram í Jökulheima.

Þyrlan lenti rétt norðan við Jökulheima um klukkan 21:30 þar sem hópurinn var að koma niður af jöklinum. Hinn ölvaði var handtekinn og fluttur með þyrlu á lögreglustöð.

Í dag hafa svo verið teknar skýrslur af hinum handtekna og vitnum að akstrinum en maðurinn var laus úr haldi lögreglu seinni partinn í dag.

Litið er á málið alvarlegum augum þar sem hættulegt sé að ferðast um jökla og nauðsynlegt að ökumenn séu alsgáðir við aksturinn.
... Sjá meiraSjá minna

Fleiri færslur

LÖGREGLAN Á Instagram