26 Júní 2017 10:17
Tilkynnt var til lögreglunnar um að ekið hafi verið utan í ljósaskilti sem staðsett er í Breiðadalslegg Vestfjarðaganganna með þeim afleiðingum að skiltið brotnaði. Skiltið gefur til kynna hvort von sé á bifreið á móti. Atvikið virðist hafa átt sér stað annað hvort 22. eða 23. júní sl. Sá er tjóninu olli tilkynnti ekki um það til lögreglu eða Vegagerðarinnar. Af ummerkjum að dæma virðist sem um stóra bifreið hafi verið að ræða. Tjónið er töluvert á mannvirkjum í göngunum. Þeir sem kunna að búa yfir vitneskju um þetta eru hvattir til að hafa samband við lögregluna á Vestfjörðum.
Alls átta tilkynningar bárust til lögreglunnar, í vikunni, um að ekið hafi verið á búfé í umdæminu. Um var að ræða búfé í Álftafirði, í Vatnsfirði, þeim syðri, og í Dýrafirði.
Alls voru 57 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu. Flestir þessara ökumanna voru stöðvaðir í Strandasýslu, á Djúpvegi en einnig á Barðastrandavegi.
Við eftirlit stöðvuðu lögreglumenn akstur ökumanns fólksbifreiðar í miðbæ Ísafjarðar. Grunur vaknaði um að fíkniefni væru að finna í bifreiðinni og við leit fundust nokkur grömm af kannabisefnum sem farþegi í bifreiðinn viðurkenndi að eiga.
Kl.03:30 aðfaranótt laugardagsins 24. júní óku lögreglumenn, sem voru í eftirlitsferð, fram á bifreið sem hafði verið ekið á gangavegg Vestfjarðaganganna. Ökumaður sem var einn í bifreiðinni var þá meðvitundarlaus og með áverka, þó ekki lífshættulega. Kalla þurfti til sjúkrabifreið og tækjabíl slökkviliðsins en ökumaður var fastur í bifreiðinni. Hann komst fljótlega til meðvitundar. Hinn slasaði hlaut lærbrot. Allt bendir til þess að tildrög slyssins megi rekja til þreytu og sifju. Ökumaðurinn var spenntur í öryggisbelti og öryggispúðar bifreiðarinnar virkuðu sem skyldi.
Tilkynnt var um annað umferðaróhapp sem varða á Örlygshafnarvegi þann 20. júní. Þá missti ökumaður stjórn á bifreið sinni og hafnaði hún utan vegar, án þess þó að velta. Engin slys urðu á fólki en bifreiðin var óökufær eftir atvikið.
Um miðjan dag þann 20. júní mætti flutningabifreiðastjóri rauðri Volswagen Caddysendibifreið á Hjallahálsi. Ökumaður sendibifreiðarinnar ók á öfugum vegarhelmingi og þurfti flutningabifreiðastjórinn að aka út af veginum til að forða árekstri. Þurfti að aðstoða flutningabifreiðastjórann að koma flutningabifreiðinni upp á veginn aftur. Ökumenn eru hvattir til að sýna aðgæslu og taka tillit til annarra vegfarenda. Ekki liggur fyrir skráningarnúmer sendibifreiðarinnar né heldur hver ökumaðurinn var.