24 Ágúst 2018 09:43

Rúmlega þrjátíu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Sá sem hraðast ók mældist á 133 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Þá var nokkuð um að lögregla hefði afskipti af ökumönnum sem ekki voru með öryggisbelti spennt eða að þeir töluðu í farsíma án handfrjáls búnaðar. Skráningarnúmer voru fjarlægð af átta bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar og einn ökumaður var með fjögur negld dekk undir bifreið sinni.

Lögreglan var svo með umferðarpóst norðan við Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni þar sem kannað var með ökuréttindi og ástand ökumanna. Um 200 bifreiðir sem  voru á leið frá flugstöðinni voru stöðvaðar og er skemmst frá því að segja að allir ökumennirnir voru með sitt á hreinu, nema fimm sem höfðu ökuskírteini ekki meðferðis.