1 September 2020 11:09
Brot 44 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, á móts við Álfhólsveg 80. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því ók mikill meirihluti ökumanna, eða 73%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átján óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.
Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.