22 Ágúst 2017 14:25

Lögreglan hafði í mörg horn að líta í liðinni viku þrátt fyrir að engin alvarleg mál hafi komið upp.  Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum en eitthvað var þó um útköll vegna ölvunar.

Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunn og var einn maður handtekinn í tengslum við rannsókn málsins en hann er grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna. Auk þess er maðurinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.  Við leit í bifreið mannsins fannst smáræði af ætluðu kókaíni.  Málið telst að mestu upplýst.

Alls liggja fyrir níu kærur vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna og má m.a. nefna of hraðan akstur, ólöglega lagningu ökutækja og brot á að virða stöðvunarskyldu.

Þá komu upp þrjú mál þar sem öryggisbúnaði barna í ökutæki var ábótavant en skv. umferðarlögum skal barn undir 135 cm vera í viðurkenndum öryggisbúnaði sem hæfir hæð þess og þyngd.  Í ökutækjum má einungis nota öryggis- og verndarbúnað fyrir börn sem uppfyllir kröfur samkvæmt reglum ECE nr

Í vikunni verður Grunnskóli Vestmannaeyja settur og má því búast við að gangandi vegfarendum fjölgi á leið til og frá skóla.   Lögreglan vill því beina því til ökumanna að fara varlega í umferðinni og þá sérstaklega í kringum skólana.  Séstaklega skal minnt á gangbrautarréttinn og eru ökumenn hvattir til að virða hann.