3 Desember 2019 15:56

Töluverð aukning hefur verið á fíkniefnamálum hjá embættinu. Um er að ræða mál þar sem aðilar eru uppvísir af því að hafa fíkniefni í sínum fórum eða hafa verið stöðvaðir í akstri og eru grunaðir um að vera undir áhrifum fíkniefna.

Sem dæmi um hvað við erum að fást við þá fengum við niðurstöðu nýlega frá
Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði hjá Háskóla Íslands sem efnagreindi fyrir okkur hvítt duft, ætlað kókaín. Efni sem tekið var af ungum manni sem hafði verið handtekinn nýverið grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Efnapróf bentu til þess að kókaínið væri að mestu á formi kókaínklóríðs en við greininguna kom í ljós að efnið innhélt kókaín, laktósa, fenasetín og tetramísólí.
Fenasetín er hitalækkandi og verkjadeyfandi lyf sem er fyrir löngu hætt að nota hér á landi og Tetramísól er ormalyf ætlað dýrum. Þessi tvö lyf teljast ekki til ávana- og fíkniefna en án efa ekki æskileg inntöku svo ekki sé talað um þegar búið er að blanda þessu í kókaín.

Það er ljóst að það er allskyns ,,skítur“ til sölu hér á landi sem einhverjir eru tilbúnir til þess að taka inn án þess að vera með fulla vissu um hvaða efni er um að ræða.