5 Október 2018 11:07

Bílvelta varð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gærkvöld. Ökumaður sem var á ferð eftir Nesvegi missti stjórn á bifreið sinni í beygju með þeim afleiðingum að hún fór út af veginum og fór tvær veltur áður en hú n staðnæmdist. Ekki urðu teljandi slys á ökumanni né farþega sem var með honum en þeir leituðu aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Bifreiðin er talin ónýt.

Fyrr í vikunni hafði ökumaður misst stjórn á bifreið sinni á Grindavíkurvegi og hafnaði hún utan vegar. Ökumaðurinn slapp ómeiddur.