3 Október 2019 10:25

Lögreglan á Vesturlandi veitti ökumanni á stolnum bíl eftirför í gær frá Akrafjalli að Melahverfi þar sem ökumaðurinn missti stjórn á bifreiðinni.  Hann ók út af og við það valt bifreiðin og endaði á hægri hliðinni.  Skömmu áður en eftirförin hófst hafði verið tilkynnt til lögreglunnar að bifreið hafi verið tekin ófrjálsri hendi við Gamla Kaupfélagið á Akranesi.  Lögreglumenn á Akranesi mættu bifreiðinni á Akrafjallsvegi þar sem henni var ekið á 139 km. hraða í átt að hringtorginu við Hvalfjarðargöng.  Ökumanni bifreiðarinnar var gefið merki um að stöðva aksturinn, sem hann gerði ekki, og var því bifreiðinni veitt eftirför. Þrátt fyrir að lögreglan væri með forgangsljós tendruð þá jók ökumaðurinn ferðina og ók áfram út úr hringtorginu norður Vesturlandsveg á ofsahraða.  Mikil umferð var á Vesturlandsvegi og skapaðist mikil hætta vegna þessa.  Lögreglumenn komu síðan að bifreiðinni við gatnamótin við Melahverfi þar sem hún var utan vegar á hliðinni.  Ökumaður var handtekinn á staðnum grunaður um nytjastuld á bifreiðinni og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.  Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á  slysadeild HVE til skoðunnar.  Hann reyndist ekki slasaður og var vistaður í fangaklefa að skoðun lokinni.